Nýliðafræðslan - Hvað þarf ég til að vera í sjálfstæðum rekstri?
fim., 21. mar.
|ZOOM hlekkur: https://us06web.zoom.us/j/840
Á viðburðinum verður farið yfir grunnatriði í sjálfstæðum rekstri: Hvað þarf að hafa í huga, hvað ber að varast, hvernig við getum haldið bókhald, sent reikninga, staðið í skilum á skatti o.þh.
Tímasetning
21. mar. 2024, 17:00 – 18:30
ZOOM hlekkur: https://us06web.zoom.us/j/840
Um viðburð
Viðburðurinn er liður í röð fræðsluviðburða sérstaklega ætlaða nýliðum í faginu og verða mánaðarlega á dagskrá fram að sumri. Viðburðaröðin er kærkomið tilraunaverkefni að frumkvæði nýliðanna Valdísar Hrannar Berg, Lellu Erludóttur og Einars Sveins Ólafssonar í góðu samstarfi við ICF Iceland.
Við hvetjum öll sem eru áhugasöm um að styðja við fagmennsku í greininni til að mæta, hvort sem eru ný í faginu eða reyndari markþjálfar sem geta miðlað áfram sinni reynslu. Saman erum við sterkari!